„Skáldið og biskupsdóttir“ Alexöndru sigraði í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu
Alexandra Chernyshova varð í 1. sæti í alþjóðalegri tónskáldakeppni eftir Isaak Dunajevskiyi í Moskvu fyrir tónsmíði sína á 14 lögum fyrir rödd og píanó úr íslensku óperunni „Skáldið og biskupsdóttirin“. Óperan er um vináttu Hallgríms Péturssonar og Ragnheiðar Brynjólfsdóttur við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, ljóð eftir Hallgrím Pétursson, Rúnar Kristjánsson, Guðnýju frá Klömbrum, Daða Halldórsson og þjóðvísur frá 13 öld. Óperan var frumsýnd í konsertuppfærslu í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði árið 2014 við góðar undirtektir.
Óperan var flutt síðasta sumar á tónleikum „Russian Souvenir: Introducing Iceland“ í Kamenoostrovskiy kastala í Petursborg. Árið 2018 var hún flutt í einum virtasta og elsta tónlistarháskóla Kænugarðs, R. Glier tónlistarháskólanum. Kænugarður er einnig heimabær Alexöndru og þetta er einn af skólunum sem hún stundaði tónlistarnám í, uppfærsla var í tilefni af 150 ára afmæli háskólans. Óperan var þýdd og sungin á úkraínsku með hljómsveit, kór og einsöngvurum.
Áður hafði óperan verið kynnt í einum virtasta skóla Moskvu, Gnessin Tónlistarakademíunni og sungin á íslensku. Á þessu ári tók Alexandra þátt í World Folk Vision keppni með lagið Ave María úr óperunni „Skáldið og Biskupsdóttirin“ í flutningi Alexöndru, lagið komst inn á topp 10. Árið 2019 varð Alexandra Chernyshova í 2. sæti í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu fyrir tónsmíði sína á óperuballettinum „Ævintýrið um norðurljósin“, en óperan var þýdd yfir á rússnesku. Óperan var frumsýnd á Íslandi í Norðurljósasal, Hörpu fyrir einum og hálfri ári. Að verkinu komu fjölmargir einsöngvarar, tveir barnakórar ásamt skólakór Stóru-Vogaskóla, ballettskóla Eddu Scheving og 16 manna kammerhljómsveit.
Þetta er í fyrsta sinn sem Alexandra vinnur fyrsta sæti í tónsmíði og sigrar á alþjóðalega vísu í Moskvu, einni af stærstu höfuðborgum heims fyrir klassíska tónlist, sem eiga tónskáld eins og Pjotr Tchaikovskiy, Sergei Rachmaninov, Rimskiy - Korsakov, Sergei Prokofiev, Dmitry Shostakovich og fleiri.
Tónlistarmenningarbrú Íslands og Rússlands
Árið 2016 stofnaði Alexandra tónlistarmenningarbrú milli Íslands og Rússlands, verkefni sem heitir „Russian Souvenir“. Alexandra hefur stjórnað þessu verkefni frá upphafi, verið listrænn stjórnandi og þátttakandi í öllum tónleikunum. Í febrúar á þessu ári voru Tónleikarnir Russian Souvenir: Alexander Pushkin í Kaldalóni, Hörpu. Þetta voru tónleikar númer tuttugu og sjö í þessari verkefnaröð. Russian Souvenir er tileinkað menningarfjársjóði rússneskrar og íslenskrar tónlistar og tónskálda. Þegar um er að ræða tónleika á Íslandi er áhersla lögð á rússneska tónlist og tónskáld og öfugt þegar um tónleika er að ræða í Rússlandi. Fjölmargir íslenskir og rússneskir tónlistarmenn hafa tekið þátt í þessu verkefni og með þeim hætti kynnt menningu síns lands fyrir áhorfendum bæði á Íslandi og í Rússlandi.